Eyjólfur Konráð Jónsson
:
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á því að þakka frummælanda fyrir að taka mál þetta upp. Þetta er vissulega stórmál, kannski eitt af stærstu málum okkar tíma og ég get ekki komist hjá því að gagnrýna að ríkisstjórnin skuli ekki fyrr hafa gert grein fyrir sínum málum. Að vísu voru svör hæstv. utanrrh. með þeim hætti að það var lítið á því að græða sem hann hafði að flytja og lítið fyrir að þakka, af minni hálfu a.m.k.
Hv. þm. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir spurði hvort samþykkt hefði verið í stjórnmálaflokkunum aðild að þessu bandalagi, þessu hernaðarbandalagi. Ég veit ekki til að það hafi nokkru sinni verið gert í Sjálfstfl. Hins vegar var í lok fundar í gær sýnt eitt lítið plagg sem menn vissu nú ekki eiginlega, alla vega ég, hvað var. Ég hafði ekki hugmynd um að neitt í þessa veru væri til umræðu og ætti að vera í dag. Þetta er allt með eindæmum og hlýtur að vekja fólk til umhugsunar um hvort þessi Evrópusamskipti yfirleitt séu öll með þessum hætti. Þá held ég að við þurfum ekkert að óttast að við ánetjumst EES með óbærilegum hætti. Menn muni þá skilja að það er ekki verið að gera eitt eða neitt fyrir okkur. Það eru farnar þær leiðir sem Evrópubandalagið ætlar sér að fara með hvaða vopnum sem eru og með hvaða bandamönnum sem þeir geta fundið til ef þeir þá finna þá einhverja.
Ég skal ekki orðlengja þetta. Mér finnst málið augljóst. Þetta er hneykslismál og hv. þm. þurfa allir að hugsa vel sinn gang áður en þeir láta það ganga lengra.