Forseti (Kristín Einarsdóttir)
:
Eins og fram kom hjá hv. 1. þm. Norðurl. v. þá var eingöngu beðið um hálftímaumræðu og hún var leyfð. Hér fór fram umræða í 36 mínútur. Það var farið að samkvæmt þingsköpum. Það hefur ekki komið fram ósk, hvorki frá forseta né formanni þingflokks um að bregða út af þessu.