Tilkynning frá ríkisstjórninni

60. fundur
Þriðjudaginn 24. nóvember 1992, kl. 17:51:37 (2587)

     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Hv. þm., formaður Alþb., lýsti því yfir með hátíðlegum hætti að hann og hans flokkur væru nú horfnir frá hefðbundinni stjórnarandstöðu. Hún ætti ekki lengur við. Ég vil spyrja þingmanninn.: Mun hann lýsa því yfir með jafnhátíðlegum hætti að hann sé tekinn upp við hina gömlu úreltu stjórnarandstöðuhætti eða eigum við bara að fylgjast með því, við og þjóðin hér í þessum sal?