Ljósatafla í þingsal

61. fundur
Miðvikudaginn 25. nóvember 1992, kl. 14:08:42 (2647)


     Forseti (Kristín Einarsdóttir) :
    Forseti vill upplýsa að vinna við þetta mál, sem þingmaðurinn nefndi, er í fullum gangi. Það er verið að leysa ýmisleg tæknileg vandamál en reiknað er með að fljótlega upp úr áramótum muni þessa tafla verða komin upp í þingsalnum ef ekki koma upp neinir erfiðleikar í því sambandi.