Tilkynning um utandagskrárumræðu

62. fundur
Fimmtudaginn 26. nóvember 1992, kl. 10:31:01 (2676)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Þess skal getið að í upphafi næsta fundar, að loknum þessum fundi, mun fara fram utandagskrárumræða sem standa má í hálftíma. Hún fer fram að beiðni hv. 8. þm. Reykn., Ólafs Ragnars Grímssonar, og er um sjávarútvegssamning við Evrópubandalagið.