Fyrirspyrjandi (Guðni Ágústsson)
:
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hæstv. félmrh. bæði það viðhorf sem kom fram í ræðu hennar og þá vinnu sem þegar er komin í gang og vil hvetja til þess að þeirri vinnu ljúki sem fyrst því að það er auðvitað óþolandi óréttlæti að einhver hópur sé utan við alla lánsmöguleika hjá Húsnæðisstofnun ríkisins.