Tilhögun þingfundar

69. fundur
Fimmtudaginn 03. desember 1992, kl. 10:31:21 (2905)

          Forseti (Kristín Einarsdóttir) :
    Áður en gengið er til dagskrár vill forseti tilkynna að hlé verður gert á fundinum frá kl. 1--1.30 en þá verða atkvæðagreiðslur. Að þeim loknum hefst umræða um 9. dagskrármál, samninga við EB um fiskveiðmál. Gert er ráð fyrir að ljúka fyrri umræðu um þá tillögu. Ef umræður verða langar gæti orðið kvöldfundur.
    Áður en fyrsta dagskrármál verður tekið fyrir fer fram utandagskrárumræða samkvæmt fyrri mgr. 50. gr. þingskapa að beiðni hv. 3. þm. Vesturl., um öryggi raforkudreifingar um landið. Umræðan má standa í allt að hálftíma.