Samningar við EB um fiskveiðimál

69. fundur
Fimmtudaginn 03. desember 1992, kl. 22:09:58 (3005)

     Forseti (Pálmi Jónsson) :

    Forseti vill taka fram að engum hv. alþingismanni hefur verið gefið sérstakt frí en nokkrir alþingismenn hafa fjarvistarleyfi, aðrir eru fjarstaddir vegna veikinda. Hér eru einnig í forsvari fyrir þessu máli af hálfu hæstv. ríkisstjórnar þeir hæstv. ráðherrar sem málið mest varðar. Ætlun forseta er að ljúka umræðunni á þessum fundi og verður henni fram haldið.