Samningar við EB um fiskveiðimál

69. fundur
Föstudaginn 04. desember 1992, kl. 00:02:48 (3015)

     Forseti (Pálmi Jónsson) :
    Hv. 4. þm. Austurl. óskar að veita andsvar. Sömuleiðis hafa tveir hv. alþm. aðrir óskað eftir að veita andsvar og verður því að haga ræðutíma þannig að leyfist að tala fullan tíma eða tvær mínútur í fyrri umferð en eina mínútu í þeirri síðari. Gildir hið sama um hugsanleg svör hæstv. ráðherra.