Samningar við EB um fiskveiðimál

69. fundur
Föstudaginn 04. desember 1992, kl. 00:20:28 (3023)

     Eyjólfur Konráð Jónsson (andsvar) :
    Herra forseti. Ég tel ljóst að skipti á veiðiheimildum geta komið til greina þegar búið er að tryggja eignarrétt að viðkomandi hafsvæðum og öll réttindi tilheyra okkur. Þá getum við gjarnan ef það hentar betur fengið fisk hjá öðrum. En fyrst þarf að tryggja réttindin og tryggja líka möguleika á því að verja þau svæði sem viðurkennd eru. Það er auðvitað ekki vansalaust að við skulum ekki verja 350 mílurnar og Reykjaneshrygg. Þar eru mikil auðæfi. Menn vita að þar eru allar mögulegar fisktegundir, og raunar á Hatton-bankanum líka, fyrir utan 200 mílurnar, öll krabbadýr og allt það sem botnlægt er.
    Þegar við höfum tryggt öll þessi réttindi okkar og þetta gífurlega hafsbotnssvæði er ekkert sjálfsagðara en að við þreifum okkur áfram um veiðar annars staðar í heiminum jafnvel í skiptum fyrir að veiða hjá okkur.