Vegáætlun 1992

70. fundur
Föstudaginn 04. desember 1992, kl. 10:38:28 (3037)

     Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ein uppistaðan í ræðu hv. þm. hér áðan var að tala um ósamkvæmni aðila í stjórn annars vegar og stjórnarandstöðu hins vegar. Ég vil þakka hv. þm. fyrir það að hafa komið hér upp og staðfest það sem ég sagði í mínu andsvari.