Tilkynning um utandagskrárumræðu

72. fundur
Mánudaginn 07. desember 1992, kl. 13:35:01 (3084)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Áður en gengið er til dagskrár vill forseti tilkynna að utandagskrárumræða mun fara fram að beiðni hv. 18. þm. Reykv. fyrir hönd Kvennalista um nýja stöðu í EES-málinu. Fer umræðan fram samkvæmt fyrri mgr. 50. gr. þingskapa og mun fara fram núna að lokinni atkvæðagreiðslu.