Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson)
:
Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frv. til laga um breytingu á lánsfjárlögum fyrir árið 1992. Frv. er afar stutt, aðeins ein grein og hún gengur út á að það megi gefa út húsbréf fyrir allt að 16 milljarða kr. á þessu ári í stað 12 milljarða eins og heimild var fyrir.
Ástæðan fyrir því að þetta frv. er flutt er sú að útgáfa húsbréfa hefur orðið nokkru meiri framan af árinu en reiknað var með vegna greiðsluerfiðleikalána, vegna yfirfærslu biðraðar frá Byggingasjóði ríkisins yfir í húsbréfakerfið og síðan vegna nýbygginga.
Heimildir sem voru til útgáfu húsbréfa á þessu ári eru uppurnar og það er afar óheppilegt að eins konar gat myndist í þessu kerfi. Þess vegna er meiningin að það sé gefinn út nýr flokkur af húsbréfum upp á 4 milljarða en einungis notaður 1 milljarður í lok þessa árs.
Ég vil líka vekja athygli á því að helsta ástæðan fyrir því að talin er þörf á þessu er sú að nýbyggingar hafa kallað á meiri útgáfu húsbréfa og ég held að það sé vandamál sem við viljum gjarnan hafa á þessum síðustu og verstu tímum, að það sé meira líf á því sviði heldur en annars væri.
Ætlunin er síðan að gera tillögu um breytingu á lánsfjárlögum fyrir árið 1993 og að sú heimild sem þar er gert ráð fyrir upp á 12 milljarða verði lækkuð í 8 milljarða.
Ég held að frv. skýri sig sjálft. Það hefur verið fjallað um þetta mál í efh.- og viðskn. þannig að ég vona að þingmenn treysti sér til þess að afgreiða það með skjótum hætti.