Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson)
:
Hæstv. forseti. Ég var svo áhugasamur um það að tala í stuttan tíma í framsögu fyrir málinu að ég gleymdi að leggja til að frv. yrði vísað til nefndar og 2. umr. en geri það hér með. Hv. 6. þm. Norðurl. e. fjallaði um áhuga minn á uppgangi í atvinnulífinu. Ég get alveg staðfest að best væri auðvitað ef uppgangur væri bæði í byggingu íbúðarhúsa og í uppbyggingu á sviði atvinnulífsins. Það verður fjallað um lántöku til húsbréfakerfisins og til húsnæðismála yfirleitt þegar við ræðum lánsfjárlög fyrir 1993. Þá gefst að sjálfsögðu tækifæri til þess að afla margvíslegra upplýsinga um framtíð alls þessa kerfis. Það þarf ekki að tefja neitt umfjöllun um þetta mál sem ég treysti að geti gengið mjög greiðlega fyrir sig hér. ( Forseti: Hafði hv. þm. einhverja sérstaka nefnd í huga?) Hæstv. forseti. Að sjálfsögðu efh.- og viðskn.