Kristinn H. Gunnarsson
:
Virðulegi forseti. Ég tek undir það sem fram kom hjá hv. 1. þm. Norðurl. v. Það hefur ekki verið samið um kvöldfund núna í kvöld og ég geri athugasemd við það. Ég bendi á að í gær var kvöldfundur og fyrirhugaður er kvöldfundur á morgun. Ég vil enn fremur gera athugasemdir við að fundatíma milli 6 og 7 á miðvikudögum sé ráðstafað án samráðs við formenn þingflokka.