Almannatryggingar

76. fundur
Fimmtudaginn 10. desember 1992, kl. 00:20:42 (3223)

     Forseti (Pálmi Jónsson) :
    Þrír hv. alþm. hafa óskað að veita andsvar við ræðu hæstv. heilbrrh. og verður þá að stytta ræðutíma þannig að í fyrri umferð megi tala í fullan tíma eða tvær mínútur og í síðari umferð eina mínútu. Gilda þau tímamörk einnig um hugsanleg svör hæstv. ráðherra.