Almannatryggingar

76. fundur
Fimmtudaginn 10. desember 1992, kl. 00:29:39 (3229)


     Heilbrigðisráðherra (Sighvatur Björgvinsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég bý ekki þessar tölur til sjálfur. Ég tek við þeim tölum sem mér eru afhentar sem niðurstaða af þeim athugunum sem gerðar eru af þeim aðilum sem eru í bestum færum til að meta þær. Ég get ekki fullyrt neitt um að þær tölur séu endilega réttar. Það getur vel verið að eitthvað annað eigi eftir að koma í ljós. En hv. þm. hefur enn minni rök til þess að fullyrða að slíkt sé rangt. Við skulum láta allar fullyrðingar um það eiga sig, við skulum bara vinna á þeim grunni sem við höfum. Við höfum þessar upplýsingar, við höfum ekki aðrar betri.