Almannatryggingar

76. fundur
Fimmtudaginn 10. desember 1992, kl. 00:34:42 (3233)

     Heilbrigðisráðherra (Sighvatur Björgvinsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það er sjálfsagt að afhenda hv. þm. þau gögn sem ég hef um þetta. Ef það er rétt sem hann segir, sem ég vil nú efast um, þá eru áhrifin af þessum aðgerðum á fjárhag ríkissjóðs miklu meiri heldur en gert er ráð fyrir í frv. og þeim skýringum sem hér hafa verið fluttar. En ég vil enn biðja menn að fara nú varlega í að fullyrða um tölur sem eru í svo miklu ósamræmi við þær niðurstöður sem fengnar eru af bæði heilbrrn., almannatryggingunum og Þjóðhagsstofnun.