Efling Akureyrar og Eyjafjarðarsvæðis sem miðstöðvar fræðslu á sviði sjávarútvegs

77. fundur
Fimmtudaginn 10. desember 1992, kl. 10:51:27 (3238)

     Jóhannes Geir Sigurgeirsson :
    Virðulegi forseti. Ég vil í tilefni þessarar umræðu vekja athygli á því að það fyrsta sem við alþingismenn sáum frá stjórnvöldum eftir samþykkt þeirrar þáltill. sem hér er verið að spyrja um og snerti rannsóknastarfsemi og þróun í tengslum við Háskólann á Akureyri var það að 9 millj. kr. fjárveiting til sjóvinnukennslu og reksturs skólaskips var þurrkuð út í fjárlagavinnunni. Af þessari fjárveitingu hafði það verkefni sem hæstv. sjútvrh. nefndi hér áðan, líffræðiverkefnið í Eyjafirði, rannsóknir á staðbundnum þorskstofnum og öðru þar verið fjármagnað. Það verkefni er því algjörlega í vindinum eins og er. Sömuleiðis rekstur skólabátsins Mímis sem Halldór Ásgrímsson hafði staðið fyrir sem sjútvrh. að flytja til Akureyrar.