Kostnaður við löggæslu á skemmtunum

77. fundur
Fimmtudaginn 10. desember 1992, kl. 11:19:30 (3257)


     Forseti (Kristín Einarsdóttir) :
    Forseti vill taka fram að þingmönnum er að sjálfsögðu heimilt að bera fram allar þær fyrirspurnir sem þeir vilja en þeir verða að gera sér grein fyrir þeim takmörkunum sem þingsköp setja ráðherrum til að svara. Þannig að í þessu tilviki þá telur forseti á engan hátt óeðlilegt að þingmenn varpi fram fyrirspurnum en bendir á að þingsköp leyfðu ekki hæstv. dómsmrh. að koma hér aftur upp.