Jóna Valgerður Kristjánsdóttir
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Ég vil aðeins endurtaka það að minni hlutinn í fjárln. hefur ekki lagt fram tillögur til hækkunar á frv. Við stóðum að sameiginlegum brtt. til lagfæringar og hækkunar á ýmsum liðum og við erum vitaskuld þakklát fyrir að hafa þar fengið að koma að sjónarmiðum okkar. Það eru rúmar 200 millj. kr. Við höfum einnig verið ásökuð fyrir það hér í dag að hafa ekki tekið þátt í niðurskurðartillögum meiri hlutans. Því er til að svara að þessar 200 millj. kr. sem eru til hækkunar munu ekki skipta sköpum ef áætlaður fjárlagahalli verður 8 milljarðar kr. Hvað viðvíkur þeim 1,5 milljörðum sem hv. þm. mun vera búinn að reikna út, og ekki skal ég efast um reiknikunnáttu hans í því, þá hefur minni hluti fjárln., þó að hann hafi skrifað nál. með ábendingum sem vitaskuld hlýtur að vera hlutverk stjórnarandstöðu á hverjum tíma að koma með ábendingar, ekki sett fram þær tillögur sem hann vitnar í áðan og eru upp á 1,5 milljarða.