Fjárlög 1993

78. fundur
Föstudaginn 11. desember 1992, kl. 01:17:00 (3323)

     Ólafur Þ. Þórðarson (um atkvæðagreiðslu) :
    Herra forseti. Það er mjög vitnað í þingsköpin og eitt af grundvallaratriðum þeirra er að atkvæðagreiðsla fari fram með þeim hætti að menn sjái niðurstöðuna. Það er náttúrlega kominn upp einn stórkostlegur annmarki enn á þessu ljóskerfi ef það birtir ekki einu sinni niðurstöðuna nema þegar því sjálfu detti í hug að því er virðist.
    Ég held það væri ráð að hringja út í fjárln. og vita hvort þeir koma ekki hingað. Ég hef ástæðu til að ætla að þeir séu vel vakandi og í góðu formi. En mér finnst það alveg með ólíkindum, ég segi nú ekki annað, ef niðurstaðan er sú að í þinghúsinu núna er hæstv. menntmrh., hæstv. fjmrh., hæstv. heilbrrh. horfinn á braut, aðrir ráðherrar ekki, hæstv. forsrh. hefur fjarvistarleyfi af eðlilegum ástæðum og ekkert við því að segja, en ég sé ekki betur en fjárln. öll sé bara horfin. Nei, það er ekki rétt. Hér stendur vaktina hv. þm. Jóna Valgerður Kristjánsdóttir og skákar nú illa hinum liðsmönnunum sem maður hélt að hefðu séð ástæðu til að vera við umræðuna.
    Þó að þeim finnist kannski stjórnarandstaðan heldur rýr þá hefur hæstv. menntmrh. sagt mjög margt af viti þessa stundina og verið til fyrirmyndar og þeim hefði verið mikið fræðsluefni að hann hefði getað veitt þeim þær upplýsingar sem hann gaf hér. Það er spurning hvort hann fer út í Austurstræti og það er spurning hvort hann nær sambandi við þetta lið.
    Ég treysti því þá þrátt fyrir kerfið að hæstv. forseti hafi sannreynt og ritarinn hafi upplýst að hér sé ekki meiri hluti þingmanna til að hægt sé að taka greiða atkvæði.