Fjárlög 1993

79. fundur
Föstudaginn 11. desember 1992, kl. 11:23:50 (3344)

     Ólafur Þ. Þórðarson :
    Herra forseti. Ég þykist hafa lesið þessi lög nokkuð grannt og hef ekki rekist á þá grein þar sem þessi heimild er. Hæstv. menntmrh. vildi ekki upplýsa það hér úr ræðustól í hvaða grein laganna þessi heimild væri. Er það mjög miður því að þar sem það er ekki upplýst, þá er minn skilningur sá að þetta sé ekki heimilt samkvæmt lögunum. Hvort skólar hafa brotið lög eða ekki hefur engin áhrif á það hvað í lögunum stendur og þess vegna segi ég já.