Fjárlög 1993

79. fundur
Föstudaginn 11. desember 1992, kl. 11:55:39 (3353)

     Kristín Ástgeirsdóttir :
    Virðulegi forseti. Mér er mikill vandi á höndum í þessu máli. Það vill svo til að ég er sagnfræðingur að mennt. Hér er um það að ræða að ríkisstjórnin ætlar að gera breytingar á aldagömlu fyrirkomulagi sem ríkt hefur hér á landi frá því að Íslendingar komu reglu á sitt samfélag. Ef samþykkt verður að leggja niður embætti hreppstjóra á landinu, þá þarf að afnema aldagömul lög frá 1746 og 1758 og að því get ég ekki staðið. Því segi ég já.