Jóna Valgerður Kristjánsdóttir
:
Virðulegi forseti. Hér er um að ræða tilfærslur á milli liða frá fjmrn. og yfir á önnur fagráðuneyti vegna þeirra 40 millj. kr. sem eru inni í fjmrn. vegna samninganna um EES, þ.e. þess starfs sem ráðuneytin þurfa að taka á sig í sambandi við það. Þetta er að vísu aðeins tilfærsla milli liða en þar sem samningurinn um Evrópskt efnahagssvæði er enn ekki afgreiddur hér í þinginu, þá sit ég hjá, ég greiði ekki atkvæði um þennan lið.