Forseti (Salome Þorkelsdóttir)
:
Forseti vill geta þess varðandi dagskrá í dag að eftir að 1. mál á dagskrá hefur verið afgreitt, þ.e. atkvæðagreiðsla hefur farið fram, er samkomulag um að gert verði hlé á fundinum í þrjú korter svo að þingflokkar geti haldið fundi. Þá verður væntanlega settur fundur með nýrri dagskrá eftir það ef tilefni gefast til.