Umræða um EES og ummæli utanríkisráðherra

82. fundur
Mánudaginn 14. desember 1992, kl. 14:31:00 (3457)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :

    Forseti hafði ekki hugsað sér að hafa kvöldfund ef umræðum yrði lokið fyrir þann tíma, og ef yrði samkomulag um annað. Forseti hefur ætíð viljað gefa þingmönnum kost á því að tala eins og þeir hafa þörf fyrir og þingsköp leyfa. Eins og hefur komið fram hjá flestum þeim sem hafa tekið til máls í þessari umræðu um gæslu þingskapa er skammur tími fram að jólum og ég held að það komi engum á óvart þó að lengja þurfi fundatímann síðustu þingdaga fyrir jól, hvort sem um er að ræða það mál sem er á dagskrá í dag eða önnur þau mál sem þarf að ljúka afgreiðslu á fyrir jólin.