Framkvæmd yfirlýsingar um ríkisfjármál

82. fundur
Mánudaginn 14. desember 1992, kl. 15:46:30 (3474)

     Forseti (Pálmi Jónsson) :
    Fyrir verður tekin umræða utan dagskrár að ósk hv. 8. þm. Reykn. um framkvæmd yfirlýsingar um ríkisfjármál, sem hæstv. forsrh. flutti 23. nóv., í ljósi yfirlýsinga hæstv. fjmrh. nú um helgina. Umræðan fer fram skv. fyrri mgr. 50. gr. þingskapalaga og getur staðið allt að hálfri klukkustund.