Ummæli utanríkisráðherra um Alþingi

82. fundur
Mánudaginn 14. desember 1992, kl. 21:16:30 (3492)

     Forseti (Pálmi Jónsson) :
    Forsætisnefnd var á fundi í dag í hádeginu. Því miður var sá forseti sem hér stendur eigi viðstaddur nema hluta þess fundar vegna annarra funda og þessi atriði sem hér er rætt um komu eigi til umfjöllunar þann tíma sem sá forseti sem hér situr var á þeim fundi.