Evrópskt efnahagssvæði

82. fundur
Þriðjudaginn 15. desember 1992, kl. 01:40:38 (3529)

     Jóhannes Geir Sigurgeirsson (um þingsköp) :
    Virðulegur forseti. Nú skal ég vera fyrstur manna til að taka undir það með virðulegum forseta að það er miður hversu mikill tími hefur farið í þingskapaumræðu í dag. Þess vegna mun ég eingöngu bera fram eina spurningu til virðulegs forseta. Hún er á þá leið hvort virðulegur forseti geti ekki deilt þeirri skoðun með mér að það kunni að vera svo að glannaleg ummæli hæstv. utanrrh. bæði á blaðamannafundum erlendis og hérlendis eigi einhvern þátt í því hversu mikill tími hefur farið í utandagskrárumræðu í dag. Ég vil biðja virðulegan forseta að svara þessari einföldu spurningu minni.