Halldór Ásgrímsson
(um þingsköp)
:
Virðulegur forseti. Hér hafa átt sér stað miklar umræður um gæslu þingskapa vegna þess að þingmenn una því ekki að þessi fundur eigi að standa langt fram eftir nóttu.
Ég vil aðeins spyrja út af því sem hv. 17. þm. Reykv. sagði, að ástæðan fyrir því að umræðum væri haldið áfram væri sú að ekki hefði náðst samkomulag um hvenær þessi umræða gæti endað: Getur hv. þingflokksformaður Alþfl. reiknað með því að hægt sé að ganga frá samkomulagi um slíkt um miðja nótt í máli sem þessu þegar mikill hluti þingmanna er fjarverandi? Hv. þingflokksformaður Alþfl. hlýtur að skilja að það er hrein fjarstæða að slíkt geti gerst um miðja nótt. Þar af leiðandi getur það ekki verið ástæða þess að umræðunni er haldið áfram. Hvort þær tvær framsögur sem eftir eru fara fram í nótt eða á morgun skiptir að sjálfsögðu sáralitlu máli um framvindu málsins á meðan ekki hefur náðst bærilegt samkomulag í þinginu. Þetta vildi ég aðeins benda á, virðulegur forseti, vegna þess að mér fundust þessi ummæli hv. 17. þm. Reykv. ekki eðlileg.