Formleg afgreiðsla EES-samningsins

83. fundur
Þriðjudaginn 15. desember 1992, kl. 13:57:46 (3549)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti vill upplýsa að henni hefur borist þetta bréf einmitt núna í þessari andrá. Það var verið að setja það í hólf forseta eftir að þingmenn stjórnarandstöðunnar höfðu fengið þetta bréf og eftir að hv. 18. þm. Reykv. hefur séð um að dreifa því hér --- svo málið sé upplýst.