Formleg afgreiðsla EES-samningsins

83. fundur
Þriðjudaginn 15. desember 1992, kl. 14:01:50 (3552)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Að gefnu tilefni vill forseti upplýsa að málið snýst ekki um hvenær forseti les póstinn sinn heldur hvenær hann berst. Forseti hafði upplýst að þetta bréf var að berast nú og var ekki komið þegar póstur forseta var tekinn um hádegið --- svo það sé alveg á hreinu.