Evrópskt efnahagssvæði

83. fundur
Þriðjudaginn 15. desember 1992, kl. 23:16:15 (3588)

     Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Hv. þm. fór með tölur um það hversu margar klukkustundir og mínútur hefðu verið nýttar til umræðu hér þar á meðal um bandorm. Það er ekki kjarni málsins heldur hitt hversu margar mínútur og klukkustundir af þessum tíma notaði hv. þm. sjálfur eða hv. þm. Steingrímur Jóhann Sigfússon eða hv. 8. þm. Reykn., þ.e. sá hópur sem sameiginlega tekur mest af umræðutíma þingsins og skerðir þannig málfrelsi annarra hv. þm.