Evrópskt efnahagssvæði

83. fundur
Þriðjudaginn 15. desember 1992, kl. 23:19:41 (3592)

     Frsm. 1. minni hluta utanrmn. (Steingrímur Hermannsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það er nefnilega staðreyndin sem mér sýnist vera staðfest í orðum hæstv. ráðherra. Þegar ég lít í gegnum þessar ótal mörgu tilskipanir kemst ég að þeirri niðurstöðu að 99% af þeim séu óþarfi og hrein vitleysa fyrir okkur Íslendinga miðað við þann skilning sem hæstv. ráðherra hafði og hefur enn á þeim málum.