Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson)
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Ég vil árétta það að öllum þessum fimm meginfyrirvörum var til skila haldið. Að því er varðar öryggisákvæðið er það ljóst að íslenskum stjórnvöldum er heimilt að beita því einhliða samkvæmt eigin mati á því hvort þörf er á því ef um er að ræða að jafnvægi raskist á vinnumarkaði, hvort heldur varðar í einstökum héruðum, atvinnugreinum eða í þjóðfélaginu í heild, þannig að ekkert fari nú á milli mála.