Evrópskt efnahagssvæði

83. fundur
Miðvikudaginn 16. desember 1992, kl. 00:33:44 (3605)

     Forseti (Gunnlaugur Stefánsson) :
    Í tilefni af ræðu hv. 2. þm. Vestf. þá er forseta ljúft að upplýsa hann um það að forseti reynir eftir megni að hafa góða stjórn á fundi en honum er ekki mögulegt að stjórna því hvernig hæstv. ráðherrar eða hv. þm. velja að biðja um orðið og flytja sitt mál. Forseti reynir að fylgja mælendaskrá eins og honum er frekast unnt en gæta jafnræðis þegar aðstæður kalla á.