Tilhögun þingfundar

84. fundur
Miðvikudaginn 16. desember 1992, kl. 13:32:10 (3623)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Áður en gengið er til dagskrár vill forseti upplýsa að orðið hefur samkomulag um það að þingfundur standi hér til kl. 5 í staðinn fyrir kl. 4 og þingflokksfundir hefjist þá seinna sem því nemur. Þá er gert ráð fyrir að hugsanlega verði hér fundur milli 6 og 7 eða hálfátta og framhaldsfundur hefjist síðan aftur kl. hálfníu í kvöld. Þetta eru þær upplýsingar sem forseti hefur fengið en tekið skal fram að ekki er fastbundið með þingfund milli 6 og 7 en það mætti e.t.v. gera ráð fyrir því.