Tilhögun þingfundar, nefndafundir o.fl.

84. fundur
Miðvikudaginn 16. desember 1992, kl. 13:41:57 (3628)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti ítrekar það sem hún sagði fyrr varðandi það ef nefndafundir þurfa að fara fram á þingtíma, þá er haft gott samráð um það og tekið tillit til þess. Hv. 4. þm. Austurl. kveður sér hljóðs um gæslu þingskapa. Forseti hafði ekki tekið eftir því að hann var búinn að biðja um orðið fyrr.