Össur Skarphéðinsson
:
Virðulegi forseti. Nú hefur þingheimur afrekað það í þessari umræðu, 2. umr. um Evrópska efnahagssvæðið, að tala 96 sinnum um þingsköp. Þetta þykir mér afar merkilegt og ég tel rétt að koma fram með þessar upplýsingar hér.
Varðandi það sem hv. þm. Hjörleifur Guttormsson var að ræða hér áðan, þ.e. fjarveru hæstv. utanrrh., (Gripið fram í.) fyrirgefðu, hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson, ég hef orðið núna. Varðandi umkvartanir hv. þm. Hjörleifs Guttormssonar hér áðan þá er rétt að það komi fram að í því samkomulagi sem gert var 2. des. milli forustu þingflokka stjórnar og stjórnarandstöðu, þá gerði hæstv. utanrrh. skýra grein fyrir því að hann þyrfti að vera utan þessa daga, þ.e. í dag og á morgun. Eigi að síður, áður en hann hóf utanför sína, þá gekk hann sjálfur á vit forustu allra stjórnarandstöðuflokkanna og greindi þeim frá því að hann væri á leið utan og spurði jafnframt hvort það væru einhverjar mótbárur við því. Samkvæmt því sem hann tjáði mér voru engar mótbárur við því þannig að það er alveg ljóst, virðulegi forseti, að það er með vitund forustu stjórnarandstöðunnar að hæstv. utanrrh. heldur í sína opinberu för til útlanda. Þetta tel ég algjörlega nauðsynlegt að komi hér fram í framhaldi af ræðu hv. þm. Hjörleifs Guttormssonar.