Forseti (Salome Þorkelsdóttir)
:
Þá hefst hér eins og áður hefur verið tilkynnt utandagsskrárumræða að beiðni hv. 18. þm. Reykv. um atvinnuleysið og aðgerðir ríkisstjórnarinnar. Þessi umræða fer fram eftir fyrri málsgrein 50. gr. þingskapa sem þýðir það hv. málshefjandi og viðkomandi ráðherra hafa fimm mínútur hvor í fyrri umferð og tvær mínútur hvor í þeirri síðari, aðrir hv. þm. og ráðherrar hafa tvær mínútur hver, tvisvar sinnum ef því er að skipta.