Atvinnuleysið og aðgerðir ríkisstjórnarinnar

85. fundur
Fimmtudaginn 17. desember 1992, kl. 15:45:24 (3719)

     Guðrún Helgadóttir :
    Hæstv. forseti. Ég vil eins og hv. 1. þm. Austurl. þakka hv. málshefjanda fyrir að hefja þessa umræðu þó stutt sé. Vissulega hefði hún verðskuldað lengri tíma. En ég get ekki á mér setið að minnast á nokkur atriði í ræðu hæstv. félmrh. og þykir mér málflutningur hennar vera farinn að fjarlægjast allillilega það samfélag sem við lifum í. Ég get ekki séð hvað það kemur íslensku launafólki að gagni ef hæstv. ráðherra ætlar að setja alþýðufólk sem hefur unnið fyrir lágmarkslaunum á námskeið. Svona lagað gerir maður á Norðurlöndum þar sem þjóðfélagsaðstæður eru allt öðruvísi og fólki er beinlínis kennt að vera atvinnulaust. Þar hefur fólk leiguíbúðir sem það getur búið í eins lengi og það vill, það er tiltölulega skuldlítið og þar eru mjög háar atvinnuleysisbætur. Það er eins og hæstv. ráðherrann hafi ekki hugmynd um í hvers konar umhverfi hún lifir. Hvað á venjulegur fjölskyldumaður að gera við rúmar 40 þús. kr. til að lifa af? Á hann svo að fara á námskeið? Að hlusta á þetta! Auðvitað er það svo hér í landi að um leið og venjulegur launamaður missir laun, þó ekki sé nema einn mánuð, einn einasta mánuð, þá er öll spilaborgin hrunin vegna þess að íslenskar fjölskyldur eru svo skuldsettar. Það væri gaman að spyrja hæstv. ráðherra: Ætlast hún til að ung hjón, sem eru kannski með tvö börn í gæslu, segi lausu því rými, sem þau hafa fyrir börn sín í gæslu, um leið og þau verða skyndilega atvinnulaus eða ætli þau reyni ekki að halda því í von um vinnu aftur og þá kostar fyrir tvö börn 60 þús. kr. á mánuði. Ég held að hæstv. félmrh. sé búinn að gleyma hvernig það er að vera fjölskyldumaður á Íslandi í dag hér í landi krítarkortanna og húsnæðislánanna. Ég held að ríkisstjórnin ætti að setjast niður og reyna að gera sér í hugarlund hvað gerist þegar Íslendingur verður atvinnulaus og reyna að setja sig í spor þess fólks.