Fjáraukalög 1992

85. fundur
Fimmtudaginn 17. desember 1992, kl. 17:09:16 (3739)

     Guðrún Helgadóttir (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Aðeins til að minna hæstv. fjmrh. á tvær einfaldar staðreyndir. Það er alveg rétt að það eru tæp tvö ár síðan atvinnuleysið byrjaði að aukast bæði í Finnlandi og Svíþjóð og einnig á Íslandi. Það er ákveðin ástæða fyrir þessu þrennu. Það eru tæp tvö ár síðan íhaldsmenn tóku við sænska samfélaginu, íslenska samfélaginu og urðu stór og ráðandi flokkur í finnska samfélaginu.