Kvöldfundur

86. fundur
Föstudaginn 18. desember 1992, kl. 18:11:33 (3799)

     Ólafur Þ. Þórðarson :
    Hæstv. forseti. Ég lít svo á að það hafi verið að tilkynna að hér ætti að vera kvöldfundur. Ég vil leita

upplýsinga um hvort það sé með samkomulagi. Sé svo mun ég ekki gera athugasemdir við það. En mér kemur það mjög á óvart ef það hefur orðið samkomulag um að halda áfram störfum með þeim hætti að hér verði kvöldfundur í kvöld.
    Það hefur verið mjög mikil umræða í þinginu og kvöldfundur á kvöldfund ofan. Það hljóta að vera einhver takmörk fyrir þeim vopnaburði og þingmenn eigi einhvern rétt á því að hér sé staðið með skipulegum hætti að þingstörfum hvað það snertir að sum mál hafi forgang vegna þess að það þarf að afgreiða þau en önnur mál séu ekki höfð á dagskránni sem ekki er nauðsyn að afgreiða. Ég tel óhjákvæmilegt annað en að koma þessum skoðunum á framfæri og óska eftir upplýsingum um þetta.