Samkomulag um kvöldfund

86. fundur
Föstudaginn 18. desember 1992, kl. 18:54:59 (3812)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Hv. þm. hefur lýst því hvaða álit hann hefur á störfum forseta og hlítir hann því og hefur engu við það að bæta og hefur þess vegna ekki ástæðu til að svara öðru en því að forseti mun láta gera könnun á því með hvaða hætti kvöldfundir hafa farið fram á undanförnum árum til upplýsinga fyrir menn svo staðreyndirnar liggi fyrir. Forseti hefur átt sæti á þingi síðan í desember 1979 og þykist sjálfur þekkja þó nokkuð til nætur- og kvöldfunda.