Samkomulag um kvöldfund

86. fundur
Föstudaginn 18. desember 1992, kl. 19:08:53 (3822)

     Ólafur Þ. Þórðarson :
    Hæstv. forseti. Ég leitaði á fund Jóns Helgasonar, hv. 2. þm. Suðurl., og spurði hann að því hvort hann hefði samþykkt kvöldfund í kvöld. Hann kvað nei við. Hann sagði að hann hefði svarað því til, þegar gengið hefði verið til hans og hann að þessu spurður, að það yrði að tala við þingflokksstjórnina. (Bankað í borð.) Hér er það einnig upplýst af Jónu Valgerði Kristjánsdóttur, 6. þm. Vestf., ef þetta heyrist fyrir hávaða í salnum, að það hafi verið þannig frá málum gengið að ekki væri samkomulag nema Framsfl. samþykkti það. Hv. þm. Geir H. Haarde veit mætavel af sinni reynslu að það hafa verið formenn þingflokkanna sem hafa mætt til þessara samninga. Hann veit það mætavel. Hér hefur því stríðshanskanum verið kastað, hann verður tekinn upp en ekki látinn liggja.