Ólafur Þ. Þórðarson
(andsvar)
:
Herra forseti. Miðað við það hversu bersöglir menn eru nú orðnir þykir mér nú rétt að taka það fram að hæstv. fjmrh. gerði fleira en hér kom fram því að á framboðsfundi fyrir vestan var minnst á það að hann hefði stundað netaveiðar með góðum árangri en talað um að það hefði verið fyrir utan kvóta.