Jóna Valgerður Kristjánsdóttir
:
Virðulegi forseti. Ég kveð mér hér hljóðs um þingsköp til þess að vekja athygli hæstv. forseta og hv. þm. á því að sá vinnutími sem okkur þingmönnum hefur verið boðið upp á hér síðustu viku er með eindæmum. Við vorum flestöll, eða þau sem sátu hér næturfund, til klukkan hálffjögur í nótt og þingfundur hófst að nýju kl. hálfellefu í morgun. Þeim þingfundi var frestað kl. tólf til þess að halda þingflokksfundi. Þeim þingflokksfundi var að ljúka og nú á að halda áfram þingfundi ásamt því að eftir atkvæðagreiðslu verður klukkutíma hlé að mér er tjáð. En á sama tíma eiga tvær nefndir að funda í þinginu, sjútvn. og utanrmn. Ég vil því spyrja hæstv. forseta hvort ekki sé mál til komið að gefa þingmönnum annaðhvort a.m.k. matartíma eða svefntíma, svona rétt hæfilegan.