Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson)
:
Virðulegi forseti. Með samþykkt 41. gr. frv. hefur meiri hluti Alþingis tekið þá ákvörðun að leggja virðisaukaskatt á þá liði sem taldir eru upp í 43. gr. Hið almenna skatthlutfall er 24,5%. Nú er verið að taka ákvörðun um það að hverfa frá þessu skatthlutfalli varðandi þær greinar sem taldar eru upp í 43. gr. og lækka það í 14%. Þetta gerist þrátt fyrir það að þessar greinar fái frádreginn innskatt sem ber hlutfallið 24,5%. Vegna þess að hér er um viðkvæmar greinar að ræða tel ég eðlilegt að skatthlutfallið sé lægra og segi þess vegna já.