Ingi Björn Albertsson
(andsvar)
:
Hæstv. forseti. Ég kem hér upp til þess að taka undir málflutning hv. þm. Ólafs Þ. Þórðarsonar varðandi heimildir 6. gr. og 6. gr. eins og hún er upp sett. Ég er honum innilega sammála að þar verður að setja inn upphæðir. Heimildir mega ekki vera eins opnar og þær eru núna settar upp og hafa verið í fjárlögum til þessa dags. Þetta er auðvitað nákvæmlega eins og að skrifa undir víxil eða ávísun og afhenda mönnum óútfyllt. Fyrir þetta á auðvitað að taka. Ég tel að þetta sé í rauninni slæm heimild fyrir ráðherra. Það hlýtur að vera erfitt að hafa svona heimild og geta ávallt legið undir gagnrýni hvernig viðkomandi ráðherra notar slíka heimild. Ég held því að það væri eingöngu stuðningur fyrir þá sem með slíkar heimildir fara að þær séu skilyrtar með upphæðum.
Ég vil aðeins minna hv. þm. á það að á árinu 1987 eða 1988, ég man ekki á hvoru árinu það var, lagði sá sem hér stendur fram brtt. við fjárlög þar sem lagt var til að 6. gr. yrði felld út. Sú tillaga naut ekki mikils stuðnings á þeim tíma.
Aðeins varðandi Staðarfell. Ég tel alveg óþarft að vera að gefa SÁÁ Staðarfell. Hins vegar ættum við að fullvissa þá og tryggja þeim afnot af Staðarfelli um ókominn tíma. Það eru engin sérstök rök fyrir því hvorki að selja né gefa þeim það, en hins vegar að veita þeim fullvissu og tryggingu fyrir því að þar geti þeir starfað um aldur og ævi ef þeir svo kjósa.